19nóvember

Update!!!!

Hvar á að byrja ??

Ég og Litli prins höfum það alveg brilliant :) Alltaf leiðinlegt veður hérna á þessu landi reyndar og fær mann alltaf til að sakna góða veðursins úti . But it's Iceland :)
Þjálfunin í fimelikunum gengur æðislega vel og elska ég þetta í botn :) Guðmundur Ívan er að æfa 2svar í viku og gengur alveg rosa vel ,enda ekki við öðru að búast :) .Fær að sjálfsögðu bestu þjálfunina hjá múttu sinni:)
Ég asninn er komin í mega jólaskap og ekki leggst það alveg eins vel í fjölskyldumeðlimi mína þegar þeir heyra jólalög á phone-inum :) En hvaða hvaða það er nú ekki svo langt í þetta og ég er mesta jólabarn í geymi :) svo ég hlusta nú ekkert á þau :) Bjarni reyndar tekur virkann þátt í þessu með mér :) .

 
Seinasta helgi var alveg æði :) hér kemur update af því :)

Föstudagur: Var boðið út að borða með honum Stjána as friends of course :) Mig langaði svo  út að borða og ég er í kreppu eins og flestir :) En hann var svo yndislegur að láta bara verða af því :) Svona eru góðir vinir :) Fór í mitt fínasta (ok ekki alveg) . Var sótt fékk meira að segja blóm til að toppa þetta :) og skelltum okkur á Caruso :) Ekki amalegt það HA :) Takk Stjáni minn fyrir að vera svona góður vinur :)
Eftir það fór ég bara heim og kíkti til hennar Ingu minnar og var þar í endalausa spjallinu :) Alltaf svo æðislegt að hitta hana Ingu mína :) Love  you :)

Laugardagur: 
Vaknaði snemma með litla prins og við mæðginin fórum í Kolaportið :) vorum þar að væflast um heillengi og gerði ég kjarakaup á glænýjum skautum fyrir  1000 kall !!! toppið það :) (svo smá föt í poka) á pening sem sæmir kreppunni audda ;)
Síðan var sko haldið á SKAUTA með Guðmund :) í fyrsta skipti .. Fórum með Jóa , Árna :) Þetta var auðvitað snilldin ein :) Guðmdundur var svona heldur valtur fyrst og skildi ekki alveg út á hvað þetta gekk .. En þegar á leið þá var minn bara farin að byðja mig vinsamlegast um að fara og leyfa sér að skauta sjálfum sem gekk svona rosalega vel :) ( tók myndir og þær koma soon) .
Leiðinlegt atvik gerðist samt þegar maður skall svona svakalega frammfyrir sig fyrir framan Árna og Jóa að hann braut á sér hendina í Tvennt ! Já í TVENNT !!! Þá var þetta búið og við fórum af svellinu .
Skellti mér þá í sund með strákunum og vinkonum Jóa eftir þetta og endaði svo í dýrindismáltið heima :)

Sunnnudagur:Fórum ég, Bjarni og Guðmundur í Smáralindina og eyddum þar yndislegum degi . Litli fór í leikjaland og unni sér þar vel í 2 klukkutíma drengurinn á meðan að ég og brósi fórum í búðarráp , Keyptum jóladisk notabene:) Sátum á kaffihúsi ,borðuðum og drukkum heitt kakó :) Og audda fékk sá stutti dekur þegar hann kom út leikjalandi og fékk heitt Kakó líka  ::)


Já alveg frábær helgi að baki og Önnur jafn góð að koma :)
Foreldrarnir á leið í bústað ,pabbahelgi svo það er DÓRUDEKUR :) ræktin , afslöppun,skautar,góður matur, nammi, sund og sofa :)
Svona verður mín helgi .. :) En ykkar ???

Heyriði ég er að kanna hvort einhver af ykkur vinum- ættingjum eigið scrabble eða twister sem ég get fengið afnot af yfir helgina :) endilega látið mig vita :)


Það sem er í uppáhaldi þessa dagana !! :)

Duffy
appelsínugulur
Kúlusúkk sokkarnir mínir
Nammi
Yoga
Ræktin
Þjálfa
Sufjan Stevens
Grey's Anatomy (græt yfir hverjum einasta þætti) hehe
Jólalög
Kristileg lög
Skautar
SÚKKULAÐI
sofa
lesa
prjóna trefilinn minn:) Im gettin old ;)


svo eitthvað sé nefnt :)  smá update í gangi :)



Svo var Árni svo frábær að lána mér myndavélina sína svo people það eru myndir á leiðinni :)

adios :) Dóris

19. nóvember 2008 klukkan 11:03
Kristín Theodóra Guðmundsdóttir
5 athugasemdir
17október

Þreytta þreytta

Ligg hérna eins og klessa uppí rúmmi eftir annasamann dag ! ... Vakna alltaf um hálf sjö á morgnanna og get ekki sofið lengur .. Er alveg hressi morgunhaninn á þessum tímum .. :) Var að vinna alllan gærdag og í dag í Anatomie og að þjálfa fimleikana og ég er stjörf af þreytu !! Nenni ekki að tala einu sinni .
Ég og litli prinsinn minn erum bara að horfa á Polar Express og spjalla . Nennum ekki að hreifa okkur.
Á morgun er hann að fara í fimeleikana og svo förum við saman í vinnunna mína og litli kúturinn ætlar að vera hjjá mér á meðan að ég vinn smá :)
Svo er það bara annar Kósý dagur sem tekur við .. erum að spá að fara í bláa lónið á morgun bara ég og litli minn .. :)
Anyway er ekki í pennastuði ..

tala seinna .. ble... Nánar
17. október 2008 klukkan 21:02
Kristín Theodóra Guðmundsdóttir
Almennt
Engin athugasemd
24september

Bráðum haddaway

Já ég og Lára mín erum komnar með passa á Haddaway klárlega klikkað djamm frammundan og danskórnir býða spenntir eftir að farið sé í þá !! GETUM hreinlega ekki beðið ! ..
Það verður úper stuð á okkur stelpunum þá :)
Litli kúturinn minn hefur það rosalega gott gengur vel á leiksskólanum og fór á fimleikaæfingu með mömmu sinni á síðasta laugardag og var þar í krílahóp og stóð hann sig þar með prýði :)
Þjálfunin mín með stelpurnar gengur að óskum og þær eru voðalega yndælar :)
Er orðin soldið geðveik á þessu veðri á þessu landi enda ekki annað hægt því það rignir stranslaust og meira þunglindisveðrið sem hvílir yfir landinu . !! Vonandi fer þetta að breytast og þá fer fólk vonandi að hressast í skapinu í leiðinni .
Ég er mikið að spá að fara til London eða Danmerkur fyrir jól og versla :) VOANNDI að það verði að því , mar þarf alveg á því að halda að komast aðeins í burtu frá Reykjavíkinni !!!
Ég er samt alveg að elska að vera hérna og líður meiriháttar vel samt auðvitað er maður svo mikið fiðrildi að það togar í mann að fara út . Danmörk verður þá fyrir valinu þegar farið verður .
Svo er ég klárlega að fara að kaupa mér myndavél :) þetta gengur ekki þarf að fara að setja myndir hingað inn til að hægt sé að fylgjast með okkur mæðginunum og bullinu í mér :)

ANYWAYS .. endilega skoðið myspace síðuna mína www.myspace.com/kristintheodora:)

over and out .. Dórs
24. september 2008 klukkan 09:28
Kristín Theodóra Guðmundsdóttir
Engin athugasemd
12september

Vá langt síðan síðast!!!!



Sko ekki skamma mig fyrir bloggleysið hérna .
Þurfti bara smá pásu frá þessum upplýsingaheimi ennnn núna skal ég byrja á að blogga á skrilljón milljón :)
Það er sko heldur betur margt búið að gerast á síðustu mánuðum . Jú við lilli erum flutt aftur í bæinn og erum hjá gömlu sem er agalega nice og okkur líður alveg svakalega vel hérna . Mar kann einhvern vegin að meta Ísland mun meira eftir að heim er komið . Litli íþróttaálfurinn er byrjaður á leiksskólanum hérna fyrir ofan og er svakalega ánægður og allt komið í röð og reglu á þennan bæ og lilli  mann hæst ánægður með alltsaman :)
Ég kenni 9 og 10 ára stelpum fimleika niðrí fimleikafélagi Ármanns og þegar ég byrjaði í því þá fanst mér eins og þarna ætti ég heima enda þekkir maður sig vel á þessu sviði :) Ægilega gaman !! Svo er maður bara að koma sér fyrir hér aftur og hefja nýtt líf á Íslandinu góða . Fullt nám býður mín eftir áramót og er mar bara að safna pening á meðan og sonna :) Njóta þess að vera til og slaka aðeins á . Ég ákvað að hætta að lifa í stressi og bara taka öllu með ró og næði enda alveg þurfti ég á því að halda .

Inga mín eignaðist lítinn strák um daginn og er hann alveg endalaust fallegur !!! ég á smá í honum :) og hann heitir því fallega nafni DAVÍÐ MÁNI :) Til hamingju Ingsí min elska þig og þú ert yndisleg mamma :)

Annars er allt gott að frétta héðan við höfum það mjög gott og allt gengur í besta:)

Róleg helgi frammundan mamma og pabbi í bústað svo það er bara að kósýast :) Enda ég með sýkingu í auganu og ekkert sérstaklega sæt í dag :) heheh

Söknum ykkar Svava og Siggi !! :)

læt fljótt vita af okkur aftur :)

12. september 2008 klukkan 11:06
Kristín Theodóra Guðmundsdóttir
1 athugasemd
03júlí

Litli engillinn minn er lítil söngstjarna:)

03. júlí 2008 klukkan 15:56
Kristín Theodóra Guðmundsdóttir
3 athugasemdir
18júní

NÝJAR FRÉTTIR .


Jæja núna er soldið síðan ég skrifaði síðast og alveg kominn tími á færslu ..

Litli kúturinn okkar átti afmæli 14 Júní og varð 4 ára :) hann var búinn að bíða svo endalaust spenntur eftir þessum degi og loksins þegar hann kom þá var minn kall sko rosalega ánægður . Það var sko bakað og bakað deginum áður og allt gert klárt fyrir afmælið og voru þessir dýrindis kökubotnar á borðinu tilbúnir þegar allir stökkva frá eldhúsinu í örskamma stund og þegar það var komið til baka þá var sko búið að borða helminginn af skúffukökunni og klára heilan botn af annari köku !!!Já Hundskömmin fékk sko rasskell fyrir þetta. ! En þessu var vel bjargað og allir ánægðir.
Á afmælismorguninn fékk hann pakka þegar hann opnaði augun sín snemma um morguninn ,ætli klukkan hafi ekki verið um 7 leitið :) og auðvitað fékk prinsinn kórónu sem amma gerði svo flotta :):) alveg æðisleg .
Við vorum svo með kökuboð kl 11-14 . Ekki komu nú margir í afmælið bara ein lítil stelpa sem er 1 árs og svo vorum við öll audda :) Danni kom frá ÍTALÍU þann 11 júní og var það himnasending að fá hann í fangið aftur og hann yfir sig glaður að hafa náð afmælinu og að þeir mátarnir tveir væru saman á ný ;), einnig kom Þór ,Þórdís ,Bjarni yndislegi bróðir minn er hérna hjá okkur líka og svo voru Karin og dóttir hennar ,svo að sjálfsögðu amma og afi :) og auðvitað breytti það hann engu þótt ekki væri stappað af krökkum því hann fékk nóg af pökkum og það var nóg fyrir hann :)
Við gáfum honum strandardót , háf ,skóflur ,bökunardót, báta og fleira til því hann er jú verðandi kokkur og notar hvert tækifæri sem hann getur til að stela matarílátum og þvíumlíku frá ömmu sinni og afa og dreifa því um allt hús .
Einnig fékk hann æðisleg stígvél frá þeim og sokka sem kom sér vel þar sem drengurinn er alla daga með þeim í garðinum og í strandarferðum með okkur .
En minn var hæst ánægður með þessar gjafir og kemur til með að nota það mikið í sumar.
Annars er þaða ð frétta að við lendum á klakanum á mánudaginn næsta og hlökkum við mikið til að koma og hitta alla famelíuna og vini .
Litli mun svo taka sumarfrí með pabba sínum og þá skundum við turtildúfurnar okkur til Hafnar og vinnum þar og eigum notalega tíma saman .
Svo jú er bara stefnt á Dk aftur eftir íslands tímann . Enda ekki annað hægt því það er svo yndislegt að vera hérna ..
SIGGI OG SVAVA ERU ENGLAR ÚT Í GEGN og hafa hugsað um okkur eins og demantana sína .
Verður mikill söknuður þegar við förum frá þeim . :(
Í morgun skutluðum við Svava svo Danna boy á flugvöllinn og keyrði ég í fyrsta skipti á hraðbrautinni sem var soldið stressandi en samt ekkert mál . Ég er náttlega svo góður bílstjóri að það er ekki við öðru að búast en að allt hafi gengið að óskum fyrir utan kanski smá villing þarna á heimleið . :)
Litli prinsinn hefur það frábært sem og við öll og erum sko heldur betur að njóta lífsins hérna í danmörkinni góðu :)
EINS GOTT AÐ ÉG FÁI SUMAR OG SÓL ÞEGAR ÉG KEM HEIM !! því veðrið hér hefur hreinlega verið að leika við okkur mikill hiti og alltaf sól .. :)

Jæja segjum þetta gott .. og heyrumst soooon af
tur ..
18. júní 2008 klukkan 18:11
Kristín Theodóra Guðmundsdóttir
2 athugasemdir
29maí

AFMÆLISBARN:)

ÉG Á AFMÆLI Í DAG :) 24 ÁRA :) JIBBÍ ..

BÚIN AÐ FÁ GULLFALLEGT SILFURARMBAND FRÁ TENGDÓ OG ÖLLUM HÉRNA HEIMA MEÐ LÍTILLI BIBLÍU Á .. OG FALLEGANN BLEIKANN BLÓMVÖND FRÁ ÁSTINNI MINNI :)

VILDI BARA SEGJA FRÁ ÞESSUM MERKA DEGI :)
29. maí 2008 klukkan 11:17
Kristín Theodóra Guðmundsdóttir
4 athugasemdir
26maí

æðislega Danmörk

Hæ allir saman :)

Já það er nú heldur langt síðan að við rituðum í dagbókina góðu .. Enda bara búið að vera nóg að gera hérna í danmörkinni .
Veðrið hefur einfaldlega leikið við okkur frá því hingað var komið 2 maí síðastliðinn . Bara ekki farið niður fyrir 18 gráður !! .. Einn daginn var hérna 35stiga hiti .
Við erum búin að fara nokkrum sinnum á ströndina og synt í sjónum og það var alveg meiriháttar .Og við erum sko að tala um hvíta strönd og rosalega fallegann sand . :) pff ísland hvað er það!!
Svo átti Tengdó mín afmæli 21 mai og varð 44 ára ;) svo það var grillað geggjað nautakjöt af Sigga KOKKI :) party og bara var frábær dagur .
Í dag er fyrsta rigningin í allann þennan tíma og það er bara góð tilbreyting enda þurfa blómin og náttúran að fá sinn skammt af vatni líka svo það þorni ekki bara allt upp.
En svo á góða veðrið að halda áfram og á FIMMTUDAGINN NÆSTA þegar ég á afmæli 29 maí :):):) þá á að vera um 32 stiga hiti hérna :) svo ég býð spennt og það er sko búið að lofa litla mínum strandarferð :) Hann ætlar sko að fara með nýja bátinn sinn sem hann átti reyndar að fá í afmælisgjöf frá afa sínum og ömmu en það tók litla dýrið ekki langann tíma að finna hann svo hann fékk hann bara aðeins fyrr .
Og hann er svo ánægður með hann að báturinn sefur hliðiná honum á hverju kvöldi:)

Svo er ég bara búin að vera að vinna alla helgina með tengdó minni öll kvöld til 22:00 og svo á laugardaginn lengur og vorum til 23:00 skálað var í kampavíni í vinnunni sem var soldið spes enda spes dagur . Prinsinn í danmörku að gifta sig og svo auðvitað jurovision um kvöldið .. Ekkert smá fallegt brúðkaup og þegar hún gekk inn gólfið þá runnu tár hjá okkur stelpunum í vinnunni og sátum með gott pappírsbréf í hendinni og þerruðum tárin .. :) hehehe já maður er soldið viðkvæmur og væminn :)
Og auðvitað Jurovision fór eins og fór maður bjóst nú ekkert við neinu hærra en 14 sæti man nú ekki einu sinni í hvaða sæti við lentum ,en enn og aftur duttum við úr keppninnni .. hehe ..
Og þvílíku barbie dúkkurnar sem voru þarna að keppa maður var bara orðlaus þær sumar hefðu nú bara getað sleppt því að vera í fötum og bara fá súlustöngina á sviðið. já alveg endalaust hallærislegt að reyna að koma sér áfram með að klæða sig í eins lítið af fötum og hægt er og að vera málaður eins og mella .
Say no more .. !!

Jæja ég ætla að hætta núna . á frí í dag og ætla að fara út í rigninguna með litlu ástinni minni . Svo hitta hana Thelmu sætu á eftir vinkonu mína hérna í Nordborg og hafa það huggó .

Heyrumst soon allir .. og þið sem eruð að skoða kvittið í gestó or some .. ömurlegt þegar fólk nennir ekki að skrifa hverjir þeir eru ..
jæja
moin ..

plús það eru nýjar myndir í myndaalbúm .. :) sendi inn meira fljótlega.
26. maí 2008 klukkan 09:50
Kristín Theodóra Guðmundsdóttir
Engin athugasemd
09maí

Ný vinna í dk og frábært veður !!

Við erum hérna í Danaveldi og það er steikjandi hiti og algjört æði hreint .
Ég er byrjuð að vinna á hjúkrunarheimili sem tendó mín er að vinna á og var fyrsti dagurinn i gær . Ég held ég hafi aldrei talað jafn lítið á einum degi !!! enn maður skilur allt sem þeir segja þegar þeir tala á hægari nótunum :) Vonandi get ég farið að tala þetta mál sem fyrst til að vera ekki eins og mállaus einstaklingur þarna :)  :)
Ég var þarna sem skugginn hennar Svövu tengdó í gær og það er sko ekki slæmt enda er hún algjört æði .    
Danni og litli voru saman í allan gærdag og framm á kvöld og fóru þeir í göngutúr með hundinn í skóginn ,sáu hesta og fullt af fallegum hlutum .Svo skelltu þeir sér í pottinn sem við keyptum handa litla um daginn enda ekki hægt að gera annað í svona veðri en að kæla sig niður !! ..
Ég fer að vinna aftur í dag og byrja kl 15:30 og verð til 22:00
Svo er Danni minn að skilja mig eftir á sunnudaginn og fer til mílanó aftur :( ömurlegt alveg .!!

En ég kem með meira blogg næst og hendi inn myndum sem fyrst :)

adios vinir                                                                           
                                
09. maí 2008 klukkan 08:37
Kristín Theodóra Guðmundsdóttir
Engin athugasemd
27apríl

Í Mílanó steikjandi hiti og æðislegt veður :)

Já það er sko heldur betur komið að bloggi hérna megin . Er bara ekki búin að nenna því ef ég á að segja alveg satt .
En videoið er orðið soldið þreytt eins og hún tengdó gaf í ljós :) hehehe :)
Já það er nú soldið að frétta héðan . Ég er komin til Mílanó eins og flest ykkar vita og kom honum danna mínum á óvart með því að mæta bara út :) Auðvitað grunaði hann eitthvað enda ekki heyrt í mér í heilann dag og þá er eitthvað í gangi :) en hann bjóst aldrei við því beint að sjá mig svo þegar við löbbuðum inn um dyrnar heima og sögðum við erum kooooomin :) þá hélt ég að það myndi líða yfir greyjið :) :) þetta var alveg frábært og litli sagði Danni ég er héééér :) sem var ýkt sætt :)
Við litla famelían höfum haft það rosalega gott hérna þessa vikuna sem við höfum verið hér :) Veðrið er búið að vera frábært og algjört sólbaðsveður :) Höfum farið í garðinn hérna hjá okkur nokkrumm sinnum og fórum svo í risa garð hérna hjá Linate sem er ekki langt í burtu bara einn bus . Þar er risa vatn sem hægt er að fara á hjólabáta og alskonar mjög flott :)
Við fórum þangað ég ,danni ,reynir ,helga og að sjálfsögðu litli prinsinn og vorum í steikjandi hita allann daginnn . Ætli hafi ekki verið um 26 stig eða yfir þegar mest var .
Þar fóru krakkarnir á hjólabát meðan ég passaði dótið okkar og til að kæla sig niður stukku þau útí vatnið og litli líka en svo kom löggubátur og bannaði þetta því þeim fanst vatnið of kalt sem var algjört bull því það var bara volgt að mati krakkanna :) En við erum að sjálfsögðu frá Íslandi og vatnið þar verður aldrei volgt svo allt sem er heitara en jökulkalt er gott :)
Farið í fótbolta sem litla fanst æði :) enda framtíðar fótboltastjarna hér á ferð :)
Læt fylgja nokkrar myndir frá ferðinni og meira er í nýju albúmi hér á síðunni .






Hér eru þeir mátarnir tveir :)



Eru þetta ekki fallegustu strákar sem til eru !! ahh þeir eru englarnir mínir :)





Eftir daginn var kóngurinn á heimilinu skaðbrunninn eins og alltaf en við hin sluppum alveg með það :) Svo jógúrtmak var það sem við gerðum allt kvöldið við hann Danna hehehe :)

hmmm hvað meira ??? Jú Krossinn minn er fundinn sem var týndur . Danni gaf mér hann í jólagjöf fyrstu jólin okkar og ég var með hann heima í gbæ þegar allt í einu hann var horfinn og ég alveg miðurmín ,en svo talaði ég við bjarna minn um daginn og þá hafði hann tekið krossinn úr munninum á ARAGONI sem er hundurinn hans . Guði sé lof fyrir það :)
Og litli var að koma úr glænýrri klippingu og er svooo sætur , það var ekkert um annað að velja en að klippa kútinn þegar hitinn hér var orðinn 26 stig og hárið blautt af svita . :) svo í klukkutíma sat litli svo stilltur á meðan að mr.italiano klippti hárið af og sá stutti er sko endalaust hamingjusamur með þetta alltsaman :)  . Spyr mig svona 3 svar á dag hvernig mér finnist hárið .. haha :)
hér er fyrir og eftir myndir :)



Þetta er Hann Rómeó :) Með sítt hár :)









algjör rokkari :)






Og hérna má sjá síddina sem var orðin soldið mikil .. samt svo töff ;)






Og hérna er hann Glænýr :)


















Ætlum að safna pínu meira svo en höldum þessu svona yfir sumarið:)
Svo auðvitað er hann að fara í boltann :) ætlum að láta hann byrja sem fyrst :)


Jæja núna er sunnudagur og sólin skýn ætla að fara með strákunum mínum í búðina og kanski við kaupum okkar ís til að kæla okkur niður . Það er nefnilega svo mikill hiti skiluru ;)
Of gott til að vera satt :)
Hugsun um ferðalag er í loftinu og verið er að skipuleggja næstu vikur og mánuði eða verið að reyna það allavega :) Kem með update soon :)
svo ég kveð í bili :)

og svo commenta takk :)


27. apríl 2008 klukkan 14:06
Kristín Theodóra Guðmundsdóttir
3 athugasemdir

Auglýsing

Hver er ég

  • Nafn: Kristín Theodóra Guðmundsdóttir
  • Kennitala: 2905842219
  • Netfang: kristinthg@gmail.com
  • Heimilisfang: Lyngmoar 2
  • Símanúmer: 6917724
  • Hjúskaparstaða: single
  • Um mig: Lítill Skrípakall

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Hér finnið þið mig! :)

Sími: 6917724

msn:englakroppur@hotmail.com

mail:kristinthg@gmail.com

www.myspace.com/kristintheodora

AFMÆLI AFMÆLI

Klukkan